laugardagur, 21. apríl 2012

"Tíminn líður....

     áfram og hann teymir mig á eftir sér" söng Jökull svo fallega á vortónleikunum í gærkvöldi. Hef svosem aldrei "spáð" mikið í Megas, og ef eitthvað þá hef ég átt erfitt með að "höndla meistarann". Hins vegar ét ég margt ofan í mig, karlinn er klár! --- Nú er mikill kraftur í vorverkum Hornfirðinga, tónleikahrina framundan og leikfélagið að frumsýna. Það er gaman að vera þátttakandi í samfélaginu þegar svona vel viðrar! Nú er orðið ljóst að við bestimann fljúgum ekki í lítið blátt hús, en við ætlum að fljúga í það hús sem litla fjölskyldan mín velur sér. Í gamla daga, þegar ég var ung var talað með mikilli virðingu um fólk sem hafði ferðast. Það var siglt. "Hann er nú sigldur þessi".. mikil lotning fólst í þessum orðum. Þegar við bestimann verðum búin endaþeysast þetta verður örugglega hægt að segja með lotningu: Hér koma sigldu hjónin! -- Ef Megas reynist sannspár í textanum þá flýgur tíminn áfram og teymir okkur með sér alla leið til Victorville á vit ævintýra sem búa í litlum strákum. -- Skólinn er á síðasta sprettinum með öllu tilheyrandi,  tónleikaferð með karlakórnum framundan, Stakir Jakar eiga sína tónleika eftir og Gleðigjafarnir líka. Af þessu má sjá að tíminn flýgur áfram, og gott ef ég næ í skottið á honum. --- Sólskálinn er tilbúinn fyrir sumarið og rósirnar þjóta upp...og næst á dagskránni er að reyna betur við matjurtakassann. Hann einhvernveginn dó bara í höndunum á mér...blómkálið svona nokkurnveginn leystist upp og litlir angar af einhverju skutu upp kollinum. Núna duga engin vettlingatök, skítur skal sóttur og bingó....allt fer að vaxa. Mér þykir helv... hart ef ég get ekki ræktað annað en graslauk í þessum annars fína sandkassa þeirra Getchell bræðra. Þar til næst óska ég ykkur gleðilegs sumars.

6 ummæli:

Ragna sagði...

Mikið verður gaman hjá ykkur að fara á vit ævintýranna og hitta þau úr litla bláa húsinu á nýja staðnum. Hvernig skyldi nú húsið þeirra verða á litinn núna.
Kær kveðja til ykkar bestimann.

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Það er sem hlutirnir séu að verða líkt og fyrir 2 árum:) Það er gott! Elska þig. Þín, Svanfríður.

Egga-la sagði...

Væri nú ekki amalegt að heyra hvað virkar í garðræktinni. Alltaf gagnlegt að fá góð ráð þegar eitthvað virkar, og líka hvað ekki virkar. Góðar stundir.

Lífið í Árborg sagði...

Gleðilegt sumar kæru hjón. Það eru spennandi tímar framundan hjá ykkur og fjölskyldunni í bláa húsinu. Bestu kveðjur úr Stóra Bláa húsinu.

Frú Sigurbjörg sagði...

Þú ert bæði sigld og sjóuð en fyrst og fremst frábær!

Íris sagði...

Þið verðið Sigldu hjonin a Holabrautinni ;) Mikið verður gaman hja ykkur að fljuga a vit ævintyranna.