laugardagur, 28. ágúst 2010

Öppdeit!








Heil og sæl þið sem kíkið hérna inn. Eðlilega hefur verið deyfð í blogginu í sumar sem segir manni að allt annað hefur forgang. Hér hefur sumarið liðið allt of fljótt, en það kemur að ári liðnu svo maður á ekki að kvarta. Myndirnar af snúðunum segja sína sögu, þar sem lítil kók í gleri og skutlutúr gerir gæfumuninn. --- Stafafellskirkja í Lóni er alveg yndisleg, að ekki sé talað/skrifað um garðinn umhverfis hana, og útsýnið maður minn, engu líkt. Ég skil ekki hvað við Íslendingar erum alltaf að planta trjám um víðan völl. Við eigum fegurst víðsýni og ósnortið, en skemmum það oft með trjám sem vilja náttúrulega vaxa, og þar af leiðandi byrgja fjallasýn. Þetta er of víða að sjá á Íslandi. --- Eftir að Ameríkufararnir héldu heim drifum við bestimann okkur til Spánar, sleiktum þar sárin og sólina og komum heim með "óeðlilegan" lit en ró í hjarta.
Fjandinn hvað það var erfitt að horfa á eftir gullunum sínum í Leifsstöð. --Nú er lífið þó að komast í sinn eðlilega vetrarfarveg, og er ég barfa nokkuð tilbúin í þann slag. --- Hef stundum skrifað hér á síðunni hve lengi fattarinn í mér er. --- Eftir heimkomu frá Spáni ákváðum við bestimann að örva svolítið íslenska hagkerfið og keyptum okkur sitthvorn "dægindastólinn", með handfangi, skemli og alles.
(Get þó með sanni sagt að ég hef ALDREI sofnað fyrir framan sjónvarpið). --- 23. ágúst áttum við bestimann 35 ára brúðkaupsafmæli, og vorum við bæði með það á hreinu, en fórum dagavillt og steinsváfum í þessum hægindum haldandi að dagurinn væri á morgun! -- Svona fór um sjóferð þá, en við gerðum okkur dagamun daginn eftir án þess að sofna í herlegheitunum. --- Bið ykkur vel að lifa þar til næst.

7 ummæli:

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Hæ hæ og gaman að sjá blogg aftur.Hver veit nema ég hermi eftir?
Takk fyrir myndirnar og ég hlakka til að fá þær sem eru í tölvunni þinni ;)
Mér finnst fyndið að brúðkaupsafmælið skildi hafa gleymst (er það kannski skyldi..nei er það nokkuð?) en þið fagnið bara því sem betur næst;)Þó var þetta nokkuð stórt afmæli,35 ár er það ekki?
Ég elska ykkur og góðar stundir í "dlólnum"

Nafnlaus sagði...

Já, eða dlóllnum!Þú færð myndirnar innan tíðar dóttir góð. Jú, skildi þetta brullaup ekki vera stórt? Stórt og farsælt. Mamma og pabbi.

Íris Gísladóttir sagði...

Til hamingju með árin 35 þó dagurinn hafi gleymst og til lukku með stólana ;) Gott að þið fenguð frið í hjartað og sálina þarna á Spáni þó óeðlilegur litur hafi fylgt með.

Ragna sagði...

Til hamingju með daginn sem faldi sig til næsta dags. Afmælið verður ekki lakara fyrir það.
Ég þekki það að detta í svefn í svona stól - ég verð oft að standa eða vappa fyrir framan skjáinn, þegar fer að líða á seinni hluta spennumynda, ef ég ætla að ná í sögulokin.
hjartans kveðja til ykkar í firðinum fallega.

baun sagði...

Mér finnst þið bara hafa haldið fallega upp á brúðkaupsafmælið og til hamingju með það:)

Lífið í Árborg sagði...

Blessuð og sæl bæði tvö og til hamingju með hægindin og afmælið. Það getur komið fyrir á bestu bæjum að draga það til næsta dags að halda þetta hátíðlegt. Það var vel til fundið hjá ykkur að skreppa í sól og sælu eftir erfiða kveðjustund.
Líði ykkur sem best, kveðja úr kotinu með þakklæti fyrir innlitið þar.

Frú Sigurbjörg sagði...

Mikið er gaman hvað þið voruð samstíga á brúðkaupsdaginn! Til hamingju með hvort annað!