mánudagur, 19. júlí 2010

Ættarmót og mikið frelsi.

Eyjólfarnir fimm frá Melum.
Hann Natti minn er að vísu orðinn dálítið framlágur á þessum tímapunkti, alltso miðnætti. Þessir litlu herramenn nutu sín í botn í leikjum með stórum sem smáum ættmennum.

Eyjólfur minn er einn af fimm Eyjólfur og langyngstur þeirra, en græddi á nafninu. Ís og þessháttar frá þeim eldri. Búskapurinn á Hólabrautinni gengur eins og í sögu því þetta eru heiðursmenn aldir upp af góðum foreldrum. Tíminn líður bara svo hratt, og þá verð ég svo meyr. Frjálsræðið er nýtt fyrir snúðana, og ég fann Eyjólf á hjólinu sínu alsælan úti við nýju sundlaugina, fékk hnút í magann, en hann vissi sem var að þetta var heldur langt ferðalag. Mér fannst innst inni hann vara þrælduglegur og varð bara stolt án þess að láta hann finna það. Natti elskar skutlutúra, ég tala nú ekki um þegar hann sér kleinuhringabúðina! (Bakaríið) Ómetanlegir dagar og það er undravert að heyra hvað þeim fleygir fram í málinu. Þetta er alltsaman þarna, og margt skemmtilegt kemur frá þeim. Keyrðum framhjá skreiðarhjöllum á dögunum, og í þeirra augum var þetta risatrampolín! Gæti að hætti ömmunnar blaðrað frá mér allt vit, en segi bara enn og aftur. Lífið er gott þar til næst.

4 ummæli:

baun sagði...

Samgleðst ykkur öllum, yndislegt að vera með fjölskyldunni sinni:)

Íris Gíslad sagði...

yndislegt að heyra, njóttu þess í botn á meðan það varir

Nafnlaus sagði...

Bara að kasta á kveðju :)

Kveðja Inda

Ragna sagði...

Þetta hafa verið yndislegir dagar hjá ykkur öllum. Nú er kominn ágúst og litla fjölskyldan farin aftur í litla bláa húsið sitt með allar góðu minningrnar frá Íslandsferðinni. Það hlýtur að vera erfitt þegar þau eru öll farin heim, en ef ég þekki þig rétt er mikið framundan í músik og öðru skemmtilegu svo tíminn flýgur fram að hæsta hitting hjá ykkur.
Hjartans kveðja,