þriðjudagur, 6. september 2011
Ljótan atarna!
Ég var varla búin að blása á blekið í sjálfblekungnum síðast þegar alræmd sýkingin bauð góðan dag. Og nú var sko ekkert elsku mamma eða amma. Síðan á föstudaginn var hef ég legið í einangrun að mestu leyti og allt heimsins besta lið vakið og sofið yfir velferð minni. Ég sem skjólstæðingur HSSA á Höfn hef ekki orðið vör við niðurskurð, en auðvitað er hnífurinn hér á lofti eins og annarsstaðar. Hví í veröldinni er ekki hægt að þyrma grunnstoðum samfélagsins. Við búum við allsnægtir, að geta gengið inn og fengið góða læknisþjónustu er því miður ekki allsstaðar í boði. Skólarnir... Æ, ég kann ekki ráðin, en ég kaus fólk einusinni til að ráða þessu en það lið stendur varla undir sjálfu sér í dag. Hvað þá á grunnstoðunum!---Fréttatíðnin er lítil þessa dagana, en bestimann er sá eini sem er æskilegur að hitta mína æruverðugu persónu, og ekki fer elskulegt starfsfólkið að segja mér djúsí fréttir. Þess vegna hlusta ég bara á RUV horfi á sjónvarpið en yfirleitt eru augun dottin og þannig líða dagarnir. Þó hef ég tekið meira eftir lífinu í kringum mig í dag en í gær, einfaldlega vegna þess að mér líður mun betur. Farin að geta talað og kyngt, sýkingin í olnboga og augum líka á undanhaldi.---Ég týndi sem betur fer ekki sálinni, hún bara hvíldist um stund. Svo segi ég bara eins og karlinn, Vittu til........á morgun verð ég bæði falleg og mikið brött. Þar til næst elskurnar.
laugardagur, 20. ágúst 2011
hremmingar í rénun
Já, ég þarf ekki annað en að horfa á snúðana mína til að lífið gangi betur, að ég tali nú ekki um stóra snúðinn sem keyrir ungana. Eftir síðustu inngjöf var allt í góðum gír þrátt fyrir allt, og sárin komu í munninn á nokkurnveginn réttum tíma. Í stað þess að hverfa á tveimur dögum fékk ég sýkingu í allan munninn, út í eyru og langt niður í "vil ekki segja hvert". Þá fór nú að syrta í álinn og dugnaðurinn að dvína, því ef ég fæ ekki að borða er voðinn vís. Til að gera langa og leiðinlega sögu stutta þá er ég loksins að verða frú Guðlaug aftur, enda ekki seinna að vænna, næsta inngjöf er eftir helgi, og þá verð ég að vera orðin nógu góð til að takast á við hana.
Ég er hreinlega farin að hallast að því þessi sýking hafi kannski ekkert með inngjöfina að gera, það virðast margir þjást af öndunarfærasýkingum þessa dagana. ---Við þessi skrif mín er eins og ekkert skemmtilegt gerist, en það er öðru nær því lífið er skemmtilegt, nú og svo styttist í Ameríkuferð. Ætlum auðmjúklega að lofa tengdasyninum að lenda almennilega áður en innrás tengdaforeldranna hefst. Með því að horfa á allar fallegu myndirnar sem ég á af fólkinu okkar bestimanns hvetur það mig til frekari dáða, og segir mér að hætta öllu röfli, og kyngja hvort sem ég get það eður ei þar til næst.
fimmtudagur, 4. ágúst 2011
Vegurinn styttist
Jæja, í morgun hófst nýr kafli í lyfjagjöfinni. Uppfull af sterum sit ég hér og trúi varla að þetta sé yfirleitt að gerast, en samt er ég farin að telja niður! Er sem sagt hálfnuð. ---Húrra fyrir því.--- Lyfin sem ég fæ núna eru öðruvísi en trukklyfin sem ég hef fengið, og vonandi léttari.Var sett í frystihanska til að bjarga nöglunum, og það var fjandakornið doldið vont. Líkamshitinn í mér var þó það góður að skipta þurfti þrisvar um hanska. Eftir blóðprufuna sem var tekin áður en lyfin voru blönduð í mig sýndi að ég tek þessu alveg ótrúlega vel. Orðrétt sagði læknirinn að ég væri sko ekki til vandræða.... ég ætla að minna mitt fólk á þetta nokkuð reglulega! Ég þarf ekki ennþá 7-9-13 að fara í milliblóðprufu, gildin mín eru ennþá það góð. ---Húrra fyrir líka.--- Þetta hefur örugglega eitthvað með gildismatið að gera! Ein hliðarverkun getur fylgt svona miklum steragjöfum, og þetta er ekki lygi. Verslunar-æði getur gripið fólk, og þá sér í lagi konur! Bestimann dreif mig því beint í náttstað eftir inngjöfina svona til vonar og vara, og hann hefur mikinn hug á að fara snemma af stað með mig heim á morgun, og mig sem vantaði svoooo margt. Jæja, koma tímar og koma ráð, og kann ég margar leiðir að góðum ráðum. En nú er ég heimaskítsmát...eldrauð og þrútið steratröll sem langar helst að smíða á nóttinni kann ekkert annað ráð en að þrauka þar til bara næst elskurnar mínar. Læt þó eitt Húrra fylgja í lokin og bið ykkur að fagna með mér.fimmtudagur, 28. júlí 2011
Blómskrýdd frú!

Það er nú bara þannig að ég elska lífið. Sérstaklega eftir góðar fréttir af tengdasyninum. Sem fyrr stendur dóttlan mín sem þessi stóri klettur í lífsins ólgusjó. Nú fer þetta að verða gott, og héðan í frá ætla ég að elta Bert upp stigann, og í lok árs ullum við hvort í kapp við feðginin, því þau standa nefnilega í ströngu. Að vera aðstandandi er heilmikið "djobb". -Héðan af Hólabrautinni er allt gott í sumarblíðunni. Garðurinn í blóma, rósaskálinn flottur, frúin málar og málar og býr til kæfu eins og enginn sé morgundagurinn. Sko, þegar sterarnir eru við völd ræð ég mér ekki fyrir kæti og krafti, en þegar þeir fjara út verður allt mikið rólegra og eðlilegra. Mikið lifandi skelfing skil ég litlu börnin núna betur sem þjást af ofvirkni og athyglisbresti. Þau eru nefnilega lítil og skilja ekki staðreyndir. Ég er fullorðin og veit um hvað málið snýst, en ræð ekki við að ná eðlilegri orku. Tek þó fram að steranir ráða ekki alveg yfir þessum þremur vikum sem líður á milli lyfja. Margir dagar eru eins og ég vil hafa þá. Í næstu viku hefst seinni skammtur af lyfjum, og þá verður fróðlegt að sjá hvernig ég virka... Okkur var sagt að seinna hollið væri vægara og því ætla ég að trúa.... Því...ég ætla í lítið blátt hús....ég ætla að faðma fólkið mitt í tætlur og ég ætla að tala við dóttluna alla nóttina! (á sterum væntanlega!) Við bestimann fórum í 36 klukkustunda ferðalag á dögunum og vorum sem fyrr skemmtilegir ferðafélagar í augum hvors annars. Merkilegt nokk eftir 37 ára búskap. Gaman að þessu kæru ferðafélagar í lífsins litrófi þar til næst.laugardagur, 16. júlí 2011
Föðurhús þann 17. júlí 2o11.
Svona byrjuðu oft bréfin í þann tíð er engar tölvurnar vóru!
Hverjum þykir sinn fugl fagur og allt það, og má alveg fullyrða að svo sé rétt. Þessvegna ætla ég að leyfa mér það að halda því fram að litla stelpan mín sem á afmæli í dag skari fram úr öðrum snótum í mínum augum! ---Þar sem ég sit núna og læt hugann reika upplifi ég komu dóttlunnar í heiminn, og þrátt fyrir að vera ósköp bág var hún strax fallegust. Við það ætla ég að halda mig og ekki orð um það meir. ---Afhverju er ég að brölta með þessi skrif á blogginu mínu? Einfaldlega vegna þess að mig langar til þess. Ég er alveg óhrædd að segjast elska dóttluna, bæði við hana sjálfa og aðra. Hví skyldi ég þá ekki leyfa mér að blasta því hér? Þessi litla hnáta sem þurfti svo mikið að hafa fyrir lífinu fyrstu vikurnar er mér efst í huga núna. Hún sýndi það strax að hún var baráttujaxl, og gaf lítið eftir ef svo bar undir, og nú lá lífið við. Hún ætlaði ekki að láta í minni pokann, enda stóð hún uppi sem sigurvegari. Ég lít ennþá á hana sem sigurvegara. Hún yfirvann nefnilega svo margt sem erfitt er að leggja á litlar manneskjur, allt gerði hún það með bjartsýnisgleraugun á nebbanum, hvikaði aldrei. Þegar hún þurfti "pepp" nú þá vorum við til þjónustu reiðubúin og alltaf á vaktinni eðlilega. Þessi litla hnáta óx úr grasi sem ábyrgur og heilbrigður einstaklingur með hjartað á réttum stað. Dálítið utan við sig á stundum og átti það til að "týna" hlutum....eða eigum við kannski að segja að "gleyma" hlutum? En hvað svosem eru vettlingar, eldhússigti, nafnskírteini (þegar mikið lá við) og fermingarföt í stóra samhenginu? Kröfur hefur daman aldrei gert, bað um 100 kall fyrir tyggjói og skilaði svo afganginum. Bleik og dömuleg föt voru ekki nógu hentug fyrir hana, of skítsækin. ( Mamman reyndi þó mikið og oft.) Lærði á endanum að frökenin hafði sinn eigin fatasmekk og þar kom minn smekkur ekki til greina, en alltaf var hún fín. Líka þegar hún kom fram obinberlega í smókingnum af pabba sínum og í skyrtu af Torfa. Tíminn leið, hún varð okkar besti félagi á ferðum okkar í útlöndum, og við sáum allt í gegnum hennar gleraugu. Líka þegar heyrðist hátt í stjörnunum, þá göptum við bestimann af hrifningu. Einu sinni sáum við hana dágóðan spöl frá okkur húkandi á hækjum sér og fólk dreif að og nánast húkti líka. Þá var mín að skoða maura við vinnu og hóaði bara í næstu menn til að sýna þeim undrið og gleðjast með sér. Svona hefur dóttlan mín verið alla tíð. Á auðvelt með að hrífast með og fá aðra til að taka þátt í gleðinni. Auðvitað er hún ekki alltaf á skemmtivaktinni, en fjandakornið, það er stutt í hana. Nú er hún að upplifa allt þetta í gegnum sína syni, og er fljót að tileinka sér þeirra hugsunarhátt. Hún er nefnilega alveg þrælflottur uppalandi. (Ég held samt að hún velji ennþá á þá föt og komist upp með það!) Síðustu mánuðir hafa ekki verið auðveldir fyrir dömuna mína. Svo mikið hefur gengið á í kringum hana að mér/okkur hefur ekki alltaf staðið á sama. En...enn og aftur kemur í ljós hversu mikill baráttujaxl hún er.......Hún stendur uppi með pálmann í höndunum. Alveg sama hvernig jörðin snýst í kringum hana, hún skal gera gott úr öllu. Því bið ég þess að nú fari útlegð míns elskulegar tengdasonar að ljúka og hann komi hress heim í lítið blátt hús. Svanfríður mín á semsagt afmæli í dag og ég tek ofan fyrir henni á allan hátt. Hjá henni er góðvinkona íslensk og munu þær þeytast um í orði og borði eins og enginn sé morgundagurinn.--- Langar til að vera fluga á vegg þar til næst. Hjartans mín, til hamingju með daginn.

sunnudagur, 10. júlí 2011
jamm og jæja
Þá fór hringvegurinn í sundur. Einmitt þegar ég ætlaði að vera á ferð í skjóli jökla. Náttúran lætur ekki að sér hæða og tekur ekki tilllit til eins né neins! Neitaði að fara fjallabaksleið, þannig að ég kom fljúgandi án bestimanns og fer í lyfjameðferð á morgun. Við Bert stöndum því í ströngu á morgun, sitthvoru megin Atlandsála. Þið sem komið hingað í heimsókn hugsið nú fallega til okkar. Á morgun er ég hálfnuð með lyfin, og þar með þessum sterku lyfjum. Síðustu 4 skiptin eru vægari, og sennilega gefin með viku millibili. Veit ekki hvort það er slæmt eða ekki, en allavega klárast meðferðin fyrr. Kannski þoli ég vikumeðferðina ekki eins vel og hingað til, en það verður seinnitíma vandamál. Má fjandakornið ekki vera að drolla þetta mikið lengur, ég þarf að fara að komast í lítið blátt hús. Ljúfastar yfir og allt um kring þar til næst.
mánudagur, 4. júlí 2011
gottgott!
Fötin fundin, fötin fundin trala la la la þar til næst. (syngist) Ps. Næstu skrif verða fyrr en síðar því mikið liggur undir. Litla hnátan mín verður stór og um hana ætla ég að skrifa næst, en hvað það verður veit nú enginn. (enn erum við að syngja) Ég ætla bara að láta hugann og puttana ráða för, en helst þó sálinni. Ljúfastar yfir þar til næst.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)