miðvikudagur, 3. júní 2009

Það er hugur í mér.

Takk fyrir innlitið í síðasta pistli. Þótt ég sé að skrifa á þessa síðu fyrir mig þá er alltaf gaman að fá heimsóknir undir nafni. Fyrir viku lauk ég vetrinum endanlega með tónleikum Gleðigjafa á Egilsstöðum. Yfir 30 söngmenn í eldri kantinum sem eru hetjur í mínum huga, það er ekki vællinn á þeim bænum þótt mikið sé að gera og dagurinn langur. Ofan í kaupið syngja þau eins og englar, og er ótrúlega fallegur hljómur í þeim þrátt fyrir aldurinn. Sá yngsti er 63 ára en sá elsti að nálgast nírætt. Ég ætla sko rétt að vona að ég hafi þennan kraft og þessa elju þegar ég verð stór, því mig grunar að söngstjórinn hafi verið sá eini í hópnum sem fór ekki úr náttbuxunum daginn eftir, og það á besta aldri! --- Gott að vera stundum í þeim röndóttu. ---- Eftir þetta vetrarbrölt var komið að því að ná í vorið, og það sótti ég í Hveragerði, sem sé hana Svanfríði mína. Í leiðinni kippti ég nokkrum fallegum plöntum með í rósaskálann. Við mæðgur áttum yndislegan keyrsludag til Hafnar, og það bara á 90! Þetta heitir sparnaðarakstur á alla vegu. Engin sekt og eyðslan á nokkuð stórum bíl 6.2 lítrar. Ég var alsæl en bestimann og restin af familíunni hló og hélt að við mæðgur hefðum farið norður fyrir. Hvað þetta lið getur verið vitlaust! 3 dagar með dótturinni liðu allt of hratt auðvitað, en nú var enginn grátur því við hittumst aftur eftir viku. Ég breiddi sængina yfir hana á kvöldin og bað fallega um að allar góðar vættir væru með henni og litlu fjölskyldunni í bláa húsinu. Ég finn að svo verður. Héðan er því allt gott og veðrið ótrúlegt. Bærinn er fullur af fólki og allir hafa nóg að gera. Rósaskáli frúarinnar er flottur og garðurinn vel gróinn. Ég snudda hér og þar og hjálpa bestamanni við hans garðyrkjustörf því allt verður að vera fínt áður en við förum vestur um haf. Þá fljúga húsflugurnar mínar inn og við segjum bless þar til næst.

4 ummæli:

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Ég knúsa þig á blússandi 90...:)

Íris Gíslad sagði...

Gott að þið áttuð góða daga hjónin með stelpunni ykkar. Ég get nú ýmindað mér að mikið hafi verið skrafað á blússandi 90 yfir hálft landið :)

Ragna sagði...

Já, allt á blússandi ferð. Svo er það bara Ameríkan eftir nokkra daga. Ég óska ykkur góðrar ferðar og þakka þér fyrir allar góðu kveðjurnar Guðlaug mín.

baun sagði...

bestu kveðjur í bláa húsið!