þriðjudagur, 11. maí 2010

Hugleiðingar um strák. Taka tvö.

Fyrir ári síðan skrifaði ég hér inn hugleiðingar og staðreyndir um nemanda sem er voða nálægt hjarta mínu. Nær hjartanu en aðrir nemendur. Kannski ljótt að segja svona, því mér þykir vænt um alla mína nemendur. Nú var altso komið að stóru stundinni í samstarfinu, grunnpróf í píanóleik skyldi tekið með öllu vafstrinu sem því fylgir. Utanaðkomandi prófdómari og lestur af blaði í boði prófanefndar, semsagt, bara staðurinn og stundin. --- Einn sjéns.--- Það get ég sagt í einlægni að hjartsláttur minn og blóðstreymið þar með var dálítið ofarlega á skalanum. Minn maður aktaði prófdómarann, lét sér í raun fátt um finnast um allt þetta vesen svona eftir á séð, lokaði augunum og spilaði eins og maður hefði sjálfur vilja spila við samskonar aðstæður. Hann var blaðalaus með öllu, allt í réttri röð, allt í nákvæmum takti og hann kunni skil á öllum höfundum. Óundirbúinn lestur reyndist "skrítið lag" en hann rúllaði honum upp. Ofan í kaupið heillaði nemandinn prófdómarann með góðri og einlægri framkomu. Getur kennari farið fram á meira? ---Varla. --- Nema hvað að þessi nemandi minn er einhverfur og því ekki á sama róli í mörgu og "við hin". Hverjir "við hin"erum hef ég oft velt fyrir mér, en hef engin svör. Ég á ekki svar við neinu sem mér og mínum kæra nemanda fer á milli í skólastofunni, en eitt veit ég. Ég hefði ekki viljað missa af þessum árum með honum. Hann er ljós, hann er manneskja sem kennir mér, hann er klár, hann er góður og heitir Jóhann Árni. Takk fyrir mig þar til næst.

8 ummæli:

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Þið hafið kennt hvort öðru svo mikið svo mikið er víst.

Íris Gísladóttir sagði...

Yndisleg lesning Gulla mín, þetta hlýtur að hafa verið draumur sérhvers kennara að upplifa þó nemandinn léti sér fátt um finnast þetta umstang. Hann er klár hann Jóhann Árni og þú líka kona góð

Nóna sagði...

Ég þakka fyrir að fá að lesa orð þín Gulla mín, þau gefa mér mikið. Ég er sannarlega glöð að fá að vita hversu mikið vinnan ykkar Jóhanns Árna hefur skilað sér fyrir framtíð hans og ekki bar það, ég veit að þetta á eftir að verða hvatning til fjölskyldna barna með einhverfu og á eftir að hvetja marga til dáða. Megir þú halda áfram að dafna í starfi kæra vinkona, með það leiðarljós að öll höfum við eitthvað fram að færa, hvert á sinn hátt. hlakka til að hitta þig á ströndinni. Kv. Nóna

Stella Solis sagði...

yndislegt!

baun sagði...

Til hamingju með Jóhann Árna!

Lífið í Árborg sagði...

Það er uppörfandi fyrir alla að lesa svona jákvæðar fréttir, þú hefur greinilega náð vel til unga mannsins eins og hann hefur náð til hjarta þíns. Bestu kveðjur úr kotinu.

Ragna sagði...

Þetta var falleg lesning og ég óska þér til hamingju með árangurinn. Mig langar til að bæta því við hvað þessi blessaði drengur var heppinn að fá þig sem kennara sinn. Þið hafið greinilega náð vel hvort til annars og gefið hvoru öðru mikið.
Hjartans kveðja í fjörðinn þinn fallega.

Egga-la sagði...

Já hugsaðu þér hvað heimurinn væri fátækur ef ekki væri til svona fólk.