föstudagur, 15. júní 2012

Mannlíf, ten points!

     Mannlíf hér er voða voða gott, og myndin a tarna sýnir Staka Jaka út við ysta haf  á fallegu kvöldi eftir tónleika. Dulítið dökk, en hvað með það, allir voru bjartir þegar myndin var tekin.Margt hefur á daga mína drifið síðan krummi sendi mér golfkúluna. Húsið málað (það sem þarf) , minningarreiturinn hreinsaður og með fínum blómum og síðast en ekki síst er girðingin kringum Stafafellskirkju á góðri leið með að verða eins og ný. Eins er ég búin að fara til Reykjavíkur í eftirlit og sagði læknirinn að ég væri bara flottust! Næsta skoðun er eftir 4 mánuði. Það er ótrúleg rússíbanareið að fara í eftirlit, ég hefði ekki trúað því. Það er eins og maður búist við hinu versta þrátt fyrir bjartsýni og jákvætt hugarfar. Þegar allt reynist svo í orden er maður eins og sprungin blaðra og tárakirtlarnir vita ekki hvenær þeir eiga að skrúfa fyrir. ----  Nú er Ameríkuferð alveg að detta á, og þegar húsflugan flytur inn erum við farin. Ég er einhvernveginn svo yfirmáta á alla vegu að ég er að pakka niður og faðma mitt fók um miðjar nætur..... sko, altso hér í mínu rúmi. Gengur ekki, en mér er alveg sama. Sef síðar. Kannski bara í flugvélinni. Núna stendur mikið til hér á Höfn við undirbúning mannlífsþáttar sem sjónvarpið er að taka upp. Bærinn er fullur af fólki sem tekur þátt í  að fegra miðbæinn og stemning mikil....nóttin björt og mannlíf gott þar til næst.

3 ummæli:

Frú Sigurbjörg sagði...

Flottur hópur af Stökum Jökum og góðar fréttir úr eftirlitinu, enda ert þú flottust, engin spurning um það!

Ragna sagði...

Hvernig er það skildu þeir þig eftir svona ofvirka eftir lælkninguna að þú getur bara ekki stoppað.
Nú slakar þú á svo þú getir notið þess að koma útsofin og vel hvíld í nýja Bláa Húsið í Ameríkunni.
Gangi þér vel að pakka.
Kærust kveðja í fjörðinn fagra til ykkar Bróa.

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Bestu fréttirnar eru þær að þú fékkst góða skoðun, svo að þú komir til okkar:)