laugardagur, 12. janúar 2013

Farwell Franz...

Gleðilegt ár þið þarna úti í víðáttunni og takk fyrir gengið ár. Ég hef ákveðið að árið 2013 verði gott ár og mun betra en 2012. Hvernig ég fæ það til að virka veit ég ekki, en samt...ég trúi því. Þó datt mín eðlislæga bjartsýni niður við fréttir vikunnar, og lái mér hver sem vill. Ég bið alla góða vætti að halda í höndina á þeim sem eiga bágt. -- Mamma mín blessunin sagði gjarnan þegar eitthvað erfitt var búið og ekkert til að halda í: Farwell Franz. Ekki veit ég afhverju hún sagði þetta, en það virkaði flott og ég ætla að gera þau að mínum varðandi liðið ár. ---Í rúmt ár hef ég verið mjög reglulega hjá sjúkraþjálfara, yfirleitt tvisvar í viku. Þetta hefur verið barningur og vont oft á tíðum. Í gær gerðist svo eitthvað....ég gat teygt meira en áður og sársaukinn minni. Þetta er sem sagt að skila sér og hefur það reynst rétt að  krabbamein og eftirleikur er ekki spretthlaup....langhlaup skal það vera og ég ætla að koma sigurviss í mark. --Lífið hér gengur sinn vanagang, karlakórinn Jökull fagnar 40 ára afmæli og ætlar að gera margt og mikið, hinir sönghóparnir mínir eru í góðu standi og er ég að byrja 20.árið með Gleðigjöfum. ---Núna er ég farin að hlakka til sumarsins því þá ætla tveir litlir guttar að "míga í saltan sjó" hér. Sé þá fyrir mér standa á bryggjusporðinum og láta það vaða! Sem sagt, ekkert svosem að frétta nema þetta með gamla árið...Farwell Franz þar til næst.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku Gulla mín, gleðilegt ár til þín og þinna. Ég þekki þetta orðatiltæki ,,farwell Franz" mig minnir að þá kveður maður það vonda og tekur á móti því góða!
Gerum nýtt ár betra og lláttu mig endilega vita þegar þið Brói komið í bæinn og við gerum okkur glaðan hitting í kaupstaðarferð ykkar heima hjá okkur, er það ekki? Við eigum ekki bara að hittast í Kaliforníu, það var svo dásamlegt og þetta er svo skrýtið eins og við hittumst sjaldan þá er það bara alltaf eins og það væri í gær þegar við hittumst! Kæra vinkona höldum endilega sambandi :D
Eyba Dóra

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Gaman að heyra að þú sért orðin teygjanlegri en áður. Ég veit ekki hvort þeir bræður láti sig hafa það að míga í saltan sjó; það yrði þá að vera útá fjörum einhversstaðar þar sem enginn sæi þá:)

Ragna sagði...

Já 2013 verður örugglega gott ár og ég óska þér alls hins besta á því blessaða ári. Mikið gott að heyra þetta með teygjanleikann - Það er örugglega betra að komast í mark úr langhlaupi en að springa á limminu í spretthlaupi, svo mikið er víst.
Ég sendi kærar kveðjur til ykkar Bróa í Fjörðinn ykkar fagra.

Frú Sigurbjörg sagði...

Tek undir með hlaupamál Rögnu hér fyrir ofan, besta teygjan er líka eftir þegar þú teygir þig í peyjana í sumar fyrir ömmuknús. Farwell Franz!

Íris sagði...

Til hamingju með öll stórafmælin og teygjuna :)