sunnudagur, 25. október 2009

Frelsi ég finn!


TROMMUSÓLÓIÐ HÆTT!
Það fór aldrei svo að ég eignaðist ekki skutlu, og ég er mjög hamingjusöm takk fyrir. Í gærmorgun var ég svo spennt að ég setti klukku til að missa nú ekki af neinu. Bestimann kom siglandi á henni heim ( á 15) og þá var ekki eftir neinu að bíða. Maður einn hér á Höfn hefur átt svona skutlu í nokkur ár og fór hann með mig í prufutúrinn, og í þessari himinsins blíðu gærdagsins fannst mér ég vera eins og fuglinn fljúgandi. Valli kom með rétta nafnið á skutluna: Frelsi skal hún heita. Fór svo í þriggja tíma "göngutúr" í dag, og sé bæinn minn í allt öðru ljósi, fer hægt yfir og tek eftir öllu. Hafi ég einhvern tíman gert góð kaup um ævina voru það þessi. ----Dóttla mín var náttúrulega yfir sig hrifin af kaupunum, en hefur sitthvað við útigallann minn að athuga. Kannski ekki skrítið hann er 18 ára! Mér þykir bara svo vænt um hann, og litadýrðin í honum hlýtur að fara að komast í tísku aftur. Ég er íhaldssöm þegar kemur að góðum fatnaði, þið ættuð bara að sjá íþróttaskóna sem ég nota við viss tækifæri. Þeir eru af dótturinni frá því hún var 13 ára, að ég tali nú ekki um úti- vinnufötin mín. Uppgjafa íþróttagalli af dótturinni frá unglingsárunum. -----Þetta eru semsagt fréttir dagsins, en líka þær að ég fór til vinnu á föstudaginn. Vonandi slepp ég við fleiri flensur. Það virðist vera alveg sama hvað etið er til að byggja sig upp og til varnar flensum. Akkúrat ekkert dugar. Á meðan við erum mannleg fáum við svona pestir, og þá er bara að taka því. Nú fæ ég sprautur á sprautur ofan og ætti því að vera vel varin, því Frelsið verð ég að nota þótt kaupið sé lágt. --- Húrra fyrir mér og þér.--- Á þessum nótum kveður Frelsisskutlan og bið ykkur um að fara varlega þar til næst.

19 ummæli:

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Frelsisskutla er flott nafn á gripinn.Mér þykja þessar myndir frábærar og er svo glöð fyrir þína hönd.Loksins loksins kemst ég með þér í GÖNGUFERÐ næst þegar við hittumst;)

Nafnlaus sagði...

Æðislegt Gulla mín. Til hamingju með skutluna þína.
Bestu kveðjur, Elsa Lára.

Ragna sagði...

Til hamingju með Frelsið Guðlaug mín. Þú ert glæsileg sama hvaða árgerð gallinn er. Það á einmitt að vera til fyrirmyndar að nýta vel góða hluti.
Kær kveðja.

Lífið í Árborg sagði...

Ég gleðst svo með þér að hafa fengið Frelsið, að ég fékk bara tár í augun við að sjá myndirnar af þér.(Kerlingar verða svo meyrar með aldrinum).Húrra, til hamingju. Kveðja úr kotinu.

Íris Gíslad sagði...

Frábært! Innilega til hamingju með skutluna Frelsi. Þetta hlýtur að vera æðislegt fyrir þig. Og ég hlakka til að mæta ykkur mæðgum einhvern tíma saman í "gönguferð"

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með"Frelsið"þetta hlítur að vera algjör bylting,njóttu þessara góðu haustdaga.Kv. frá Ak.Ásta.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með"Frelsið"þetta hlítur að vera algjör bylting,njóttu þessara góðu haustdaga.Kv. frá Ak.Ásta.

Frú Sigurbjörg sagði...

Til hamingju með frelsið; skutluna og að komast aftur í vinnuna!

Nafnlaus sagði...

Frelsið um líkamann æðir. Frjáls eins og fuglinn, ferðastu um holt og hæðir. Alla vega um stræti og torg. afi óskar þér innilega til hamingju með gripinn, sem mun bera þig á örmun sér út um hvippinn og hvappinn. Vertu "frelsinu" fegin og njóttu þess í botn.

baun sagði...

Hjartanlega til hamingju með þessa ofurflottu skutlu! Þið eruð glæsilegt kombó:)

Unknown sagði...

Oh, veistu ég bara fíla þig í tætlur! Til hamingju með skutluna. :o)

Þóra Marteins sagði...

Til hamingju með skutluna :-)

Stella sagði...

Til hamingju með Frelsisskutluna - þetta hlýtur að vera yndislegt fyrir þig...

Egga-la sagði...

Frelsid er yndislegt. Til lukku.

Unknown sagði...

Sæl Gulla
Til hamingju með skutluna hún er ekkert smá flott :)
Mér finnst gallinn nú bara flottur, hann minnir mig óneitanlega á tónskólann og æskuárin.

Bestu kveðjur heim
Guðrún Sturlaugsd.

Unknown sagði...

Sæl Gulla
Til hamingju með skutluna hún er ekkert smá flott :)
Mér finnst gallinn nú bara flottur, hann minnir mig óneitanlega á tónskólann og æskuárin.

Bestu kveðjur heim
Guðrún Sturlaugsd.

Nafnlaus sagði...

Þú tekur þig virkilega vel út á Frelsisskutlunni :)
bestu kveðjur í fjörðinn fagra, Heiðdís Hauksdóttir

Nafnlaus sagði...

Þú tekur þig virkilega vel út á Frelsisskutlunni :)
bestu kveðjur í fjörðinn fagra, Heiðdís Hauksdóttir

Kristbjörg sagði...

Til hamingju með glæsilegu skutluna og nafngiftin er ansi góð. Er nú sammála Svanfríði með gallann en þó hlýnar mér um hjartarætur þegar ég sé þig í honum. Minnir mig á æskuárin hehe :)
Bestu kveðjur heim í Hornafjörðinn fagra úr Hafnarfirðinum :)