Veit ekki, en ég er lasin og þar af leiðandi leið. Fékk lyf því blessuð berjasaftin dugði ekki, svo trúi ég alls ekki að jólin byrji í IKEA! Hef sennilega allt á hornum mér í dag, enda orðin Hornfirðingur. Góða helgi og farið varlega með kærri kveðju á alla bæi.
8 ummæli:
Þú ert yndið mitt yngsta og besta....:)líður þér betur?
Onjk onjk onjk & onjk onjk! (Láttu þér batna & vertu glöð).
Farðu vel með þig frú. Ef þú skellir í þig lyfjunum með góðum slurk af berjasaft þá er ég viss um að þér fer að batna.
Hún er líklegast ekki með svínaflensuna (sem betur fer).
Góðan bata!
Batni þér nú fljótt og vel Guðlaug mín, hvort sem það verður nú með hjálp berjasaftarinnar eða þessu hefðbundna sem stundum er þörf á.
Kær kveðja í bæinn þinn.
Góðan bata Gulla mín. Þér fer örugglega að batna en farðu vel með þig.
Kveðjur, Elsa Lára.
Leitt að heyra. Öll él birtir upp um síðir. Á svona stundum er gott að eiga vænan slurk af berjasaft og hefbundinar mixtúrur og pillur lína. afi sendir þér kveðju með ósk um skjótan bata. Kannski að afi sendi þér smá elexír af öðrum toga.
Skrifa ummæli