föstudagur, 8. febrúar 2013

Gellur og gúmmelaði!

Jæja gott fólk, enginn lengur á blogginu svo ég get látið öllum  illum látum hér ef mér sýnist. Margt hefur gerst síðan síðast en ekkert af því svosem markvert, og þó. Fékk pest en  lagaðist sem betur fer, búin að halda skemmtilegt matarboð með the silver boys og þeirra konum, búin að hlæja og gráta og lifa lífinu.  Karlakórinn heldur áfram að halda uppá fertugs afmælið og lætur sauma á mig flott föt hjá Millibör! Ein flík sem getur verið þrjár flíkur. Ég þarf bara að læra hvernig maður vefur þessu til og frá.  Það margborgar sig sem sagt að vera undirleikari hjá sama kórnum í tæp 40 ár! Talandi um Millibör....hönnuðurinn þar er aldeilis ótrúlegur.( er ung kona) 5 ára nám...og ég kann varla að þræða nál. ( Ok, hún kann ekki að spila!). Nú, svo er bestimann búinn að klippa í sólskálanum og ég held áfram að elska fólkið mitt. Sérstaklega það í Ameríku. ---Hlakka til sumarsins, og tel að lífið sé bara nokkuð gott. Fer í stóra tékkið í mars og bið einfaldlega um gott veður mér og mínum til handa. Síðast þegar ég fór fannst mér svo ógnarlangt í næsta tékk....en tíminn líður svo hratt að maður nær varla að snúa sér við.--- Nemendur sem ég fékk í nám fyrir margt löngu eru þessa dagana að fá bílpróf... er farin að kenna barnabörnum vinafólksins!  Þetta er náttúrulega bara dásamlegt. Talandi um gellur og gúmmelaði...ég er gellan í nýju fötunum og við bestimann ætlum að eta glænýjar gellur á morgun. Gúmmelaðið fær svo krummi þar til næst út í tómið.

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

fræabært að lesa,veit þú færð súper góða skoðun í mars, það er ekki annða í boði :-) kveðja úr græna húsinu á Vopnafirði Kristrún :-)

Ragna sagði...

Vonandi verður skoðunin góð. Égh heyri nú frá þér þegar þið komið í borgina. Ég á líka að mæta á ganginn góða í marz, þann 21.
Þú verður nú að senda okkur mynd af þér í nýja sérhannaða dressinu þínu. Auðvitað ert þú aðal gellan á staðnum og það kann auðvitað karlakórinn eins og aðrir að meta. Ég sendi ykkur Bróa mínar kærustu kveðjur.

Egga-la sagði...

halló tjékk. gangi þér vel í skoðin.

Frú Sigurbjörg sagði...

Láttu bara öllum illum látum en við erum þó nokkrar sem rembumst við bloggið og kíkjum á þig, aðalgelluna. Ég tek undir með Rögnu; þurfum við ekki að fá mynd af sérhannaða fíneríinu?

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Ég hlakka svo til að sjá þig í dressinu. Og ég er sko sammála henni Kristrúnu, að ekkert annað en góð skoðun er í boði. Þykir vænt um ykkur.

Unknown sagði...

Veit þú færð góða skoðun Gulla mín, ekki spurning um það. Gott að kallakórinn er góður við þig, það áttu skilið ;) Gaman þegar kallakórar eiga afmæli, þekki það frá fyrra ári þegar minn varð 100 ára. Kveðjur og knús. Ingólfur Kjartans

Íris sagði...

Þetta var eitthvað bara svo góð lesning. Full af jákvæðni, gleði og ást. Svoleiðis á það að vera. Kærar kveðjur í kotið.

Íris sagði...

Þetta var eitthvað bara svo góð lesning. Full af jákvæðni, gleði og ást. Svoleiðis á það að vera. Kærar kveðjur í kotið.

Nafnlaus sagði...

|
|
|