laugardagur, 2. mars 2013

Fúdendfönn!



Það er virkilega gaman að vera til og búa í bænum mínum. Hátt til lofts og vítt til veggja, og jöklaútsýnið er milljón dollara virði. Í gærkvöldi var ég svo sannarlega minnt á hve allt getur verið fallegt ef maður nennir að horfa og njóta. Food and fun ( angi af fyrirbærinu) var í mikilli óvissuveislu í Fundarhúsinu í Lóni, en það er úti í  óendanleikanum, langt frá byggð. Stjörnubjartur himinn, norðurljósin lýstu upp dimmuna og útlendingarnir stundu af lotningu. Friðarkertin í tugavís gerðu svo staðinn að draumaveröld. Það var gaman að geta tekið þátt í að skemmta við svona aðstæður. Stakir Jakar þjónuðu til borðs í fínum lopapeysum og brustu svo í söng reglulega. Þetta var ævintýri. -- Ég var í lopakjól, átti betur við en dressið sem sést hér að ofan. Ég fullyrði að frúin var sko aldeilis fín í flíkinni, en ég kann ekki ennþá að nota alla fídusa sem hún býður uppá. Fer í læri við tækifæri, en Jökull er klárlega með´etta. Lífið semsagt gengur sinn vanagang hér með nokkrum u beygjum sem alltaf má búast við, en þær beygjur eru bara gefandi og góðar.--- Fékk bréf frá Lansanum og á ég að mæta í stóratékkið 14 og 15. mars. Finn fyrir fiðrildum af og til en ég held að þau séu mest í sálinni og fljúgi svo burt að skoðun lokinni.  9. mars eru tvö ár liðin frá því að ég fékk greiningu, ótrúlegt hvað tíminn líður og í raun ekki svo erfitt að líta í baksýnisspegilinn. Held semsagt áfram göngu minni í gegnum tilveruna með bestimann mér við hlið og yndislegt fólk í Ameríku. (sem við fáum að faðma áður en langt um lýkur) Þar til næst bið ég alla vel að lifa.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú ert ekkert nema glæsileg eins og alltaf! Það hefur örugglega verið gaman með Jöklum í Lóninu það sem er svo fallegt. Ég hef aldrei verið þar á þessum árstíma og er viss um að maður geti líka heyrt í Norðurljósunum eins og maður gerði þegar maður var barn (það er svo hrikalega langt síðan í árum talið þó svo manni finnist það ekki). Er Svanfríður að koma heim eða eruð þið að fara út?
kv
Eyba

Ragna sagði...

Mikið ertu glæsileg á myndinni Gulla mín - Falleg kona í svona líka fallegum kjól. Það var svo gott að sjá nýja færslu frá þér og þessi er sko ekki af verri endanum. Þetta hefur verið alveg dásamlegt hjá ykkur þarna í Lóninu með fallegum söng, norðurljósum og "alles". Svo styttist í fagnaðarfundi við Svanfríði og fjölskyldu.
Ég óska þér allra bestu skoðunar á Lsh. Verum í sambandi.
Hjartans kveðja til ykkar Bróa.

Frú Sigurbjörg sagði...

Glæsileg ertu kæra vinkona, berð þennan kjól eins og sú fallega kona sem þú ert!

Íris sagði...

Get rétt ímyndað mér að það hafi verið ævintýri líkast í fundarhúsinu og í kringum það. Kjóllinn atarna er sérdeilis glæsilegur. Er hann Hornfirsk hönnun?

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Ég svara bara spurningunum : Eyba Dóra, við erum að koma heim í sumar. Fyrst komum við strákarnir og svo (vonandi) fylgir Bert okkur eftir. Íris: hún Ragnheiður hans Kela hannaði og saumaði kjólinn. Glæsilegur og mamma glæsileg í honum :)