laugardagur, 11. janúar 2014

Það var og.....


Jájá ég veit, jólin eru búin og ég óska öllum gleðilegs árs. Nú eru allir sveinkarnir mínir lagstir í dvala og ég verð voða glöð en hissa þegar ég tek þá upp næst, hissa á því hvað tíminn líður hratt. Sá á efri myndinni kom rétt fyrir jól frá Þýskalandi, feitur og pattaralegur, algjör rjómalús. Vinahjón komu hér rétt fyrir þrettándann, höfðu farið í jólaþorpið í Hafnarfirði og séð þennan líka fína og sæta jóla"svein" og keyptu fyrir mig. Það sem þau vissu ekki og var svo yndislegt að þessi var sá eini sem mig vantaði í familíuna sem átt hefur heima í eldhúsglugganum nokkuð lengi. Vonandi eignast ég svo fyrir næstu jól þann hollenska með svarta þrælinn sinn. Ég á þá á einhverju plasti til að líma á rúðu, en mig langar bara að eignast stytturnar. Allt í bígerð. Jól og áramót liðu ljúflega og kökkurinn farinn, nú hlakka ég einungis til Ameríkuferðar í sumar. Vorönn að hefjast á öllum tónlistarvígstöðvum, og þorrablót á næstunni. Í  þorrablótsnefnd sitjum við bestimann....það er doldið töff! Við erum ellismellirnir með alveg stórgóðu hugmyndaríku fólki sem víla ekkert fyrir sér. Það er mikil upplifun að vinna með öllu þessu unga fólki og sjá hvað þau eru á góðum stað í lífinu í öllu tilliti, og  sjá líka hvað við bestimann erum  heppin með að hafa lifað það lengi vel virk til að njóta þess að vera þátttakandi og hrífast með yngri kynslóðinni.  Mér finnst t.d. alveg dásamlegt að kenna börnum fyrrum nemenda minna, nemenda sem orðið er fullorðið fólk. Ég þekki bakgrunn barnanna þeirra og líka hvernig hljóðfæri þau eiga! Þetta eru forréttindi skal ég segja ykkur. Fátt er annað títt úr mínum ranni fyrir utan þetta daglega brauð sem allir glíma við. Þarf ekki að fara spönn frá rassi fyrr en í mars, og tel mér trú um að þá séu vetrarveðrin að baki, vitandi þó betur. Eins og bestimann segir gjarnan: þú átt ekki að fara út fyrir pípuhlið frá október og fram í maí. Legg ekki meira á ykkur þar til næst.

3 ummæli:

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Og svo er auðvitað ekkert slor fyrir þau yngri að vinna með ykkur eldri :) Flottur þessi frá Þýskalandi, gaman að þessu hjá þér.Elsk'ykkur!

Lífið í Árborg sagði...

Mér finnst líka svo skemmtilegt að taka upp jóladótið frá síðasta ári, bæði af því hvað tíminn líður hratt og svo er ég svoddan ellismellur að ég man ekki hverju ég pakkaði niður svo margir góðir hlutir koma á óvart, um hver einustu jól. Góða skemmtun á þorrablótinu ég veit að það verður æði.

Frú Sigurbjörg sagði...

Hlakka til að lesa meira blogg hér á þessu nýja ári. Takk fyrir allt og allt mín kæra.