laugardagur, 26. október 2013

Saknisakn...


Þar sem ég var alveg viss um að mín væri saknað skellti ég mér á svosem eitt blogg. Það eru að vísu flestir hættir að blogga eða kíkja í kaffi, en mér finnst þetta form miklu skemmtilegra en fb. Mín sérlunda. Ég nefnilega ætlaði aldrei að byrja að blogga, en ung og góð stúlka taldi mér trú um að þetta yrði ég að gera og setti mig upp eins og hún  kallaði það svo fagmannlega! Sjálf er hún svo löngu hætt að skrifa! --- Fyrir tveimur vikum fórum við bestimann ásamt fylgdarliði norður á Vopnafjörð, og alveg í himinsins blíðu. 16 stiga hiti báða dagana. Þar upplifði ég algjöra menningarveislu, og fékk að taka þátt í henni með kvartettssöng vopnfirskra karla + bestimanns. 3ja tíma veisla, troðfullt hús og engum leiddist. Vopnfirðingar: ef þið læðist hér inn þá eigið þið hrós og heiður skilinn.  Fagridalur, Framtíð, Holt og allt hitt....takk. --- Nú, ekki létum við bestimann deigan síga eftir Vopnafjarðarför heldur drifum okkur í málningarvinnu hér á bæ. Nú er allt svo skínandi hvort sem það er bókarskotið, dóttlusvítan eða lyklakippusafn bestimanns. 1100 kippur á vegg og hver og ein þvegin! --- (Er þetta ekki hálfgerð "belun"?!) Skólinn, kórarnir og allt annað sem tengist lífi okkar gengur sinn besta gang, cd upptökur Jökuls að klárast og ég sit sveitt yfir h moll svítu Bach. --- Minn draumur hefur verið lengi að skrifa pistil sem er bara á neikvæðum nótum....þið vitið, svona um ambögur, íþróttamál, ljótar fréttir og dýrkun á vitlausu fólki úti í hinum stóra heimi.  En núna komst ég ekki í þann gírinn.  Lífið er nefnilega svo miklu skemmtilegra án þessa sem ég ætla þó einhverntíman að skrifa um þar til næst. Sendi ljúfar yfir og allt um kring.

laugardagur, 5. október 2013

Já lífið.....



...er gott,  og mikið gott. Síðan síðast hef ég fengið brautskráningu frá kr.meins.skurðlækninum mínum og hinn gaf mér góða skoðun og þarf ekki að koma aftur fyrr en eftir 6 mánuði.  Efsta myndin er svolítið skemmtileg. Eftir brjóstnámið dvöldum við bestimann á sjúkrahótelinu í góðri umönnum og mikilli hlýju.Ég átti að æfa mig á að "ganga" upp vegg til að ná góðri teygju á handlegginn. Déskolli sárt. Alltaf þegar við höfum þurft að "ganga til lækna" (þið munið, Guðrún frá Lundi!) þá gistum við á téðu hóteli og mjög gjarnan í sama herberginu. Meðal annars var það mitt verelsi í fimm vikur meðan á geislum stóð. Bestimann setti lítið blýantsstrik í upphafinu, og sést það enn, allavega sjáum við það. Á myndinni sést hversu mikilli teygju ég hef náð, og á samt töluvert eftir .Hef alltaf getað spilað,  sú hreyfing tapaðist aldrei, (svona út og suður hreyfing)  en ég á erfiðara með að hengja upp þvott, og þar kemur bestimann oft sterkt inn! Síðan síðast:--- Bestimann vaknaði MJÖG snemma daginn eftir góða skoðun frúarinnar og datt þá í hug að skoða bílakaup, og jafnvel að kaupa einn slíkan. Skemmst er frá að segja að bíll var keyptur....algjör drossía! Við þennan fína bíl gat frúin varla látið sig sjást á komandi jazz og dixilandtónleikum öðruvísi en í nýjum kjól. Til að gera langa sögu stutta: Það er lítil yndisleg búð á Njálsgötu 62 sem selur það sem drottningar þurfa, og það fyrir mjög sanngjarnt verð. Þangað fer ég svo sannarlega aftur og mæli með búðinni. --- Síðan síðast: --- Afmælistónleikar og ball....sungið og spilað og ágóðinn rann til Krabbameinsfélags suð-austurlands. Alveg fullt af "pjéningum" sem Hornfirðingar gáfu af heilum hug í viðbót við þá skemmtun sem sóst var eftir. --Alveg magnað hvað samstaða fólks getur náð langt. Bestimann var í denn tid....sko fyrir heilum 49 árum í hljómsveit, Pan kvintett sem spiluðu víða og voru að mér skilst déskolli góðir. Fyrir mína tíð. Áttu búninga og æfðu grimmt. Flottir gæjar. Nú komu þeir saman aftur og hafa bara orðið betri með árunum ef eitthvað er. Fyrir 49 árum voru þeir kornungir og kunnu lítið fyrir sér, en allir músíkalskir og höfðu stóra drauma sem þeir létu rætast. Allar götur síðan hafa þeir verið viðriðnir tónlist hver í sínu lagi og stundum saman og hafa nú reynslu, grátt hár og yfirvegun.--- Síðan síðast ákváðum við bestimann að skreppa aftur norður á Vopnafjörð á næstunni og taka þátt í söng og gleði með heimamönnum. Ég er veðurskræfa og bið því um gott veður í öðrum skilningi en svo oft áður. Því skyldi það ekki ganga upp núna eins og fyrr?  Þar til næst sendi ég ljúfar yfir.

sunnudagur, 15. september 2013

Uppsafn og uppsóp!

 Þetta ætlar ekki að ganga eins og til var ætlast. Ég er að átta mig á því að tæknin og ég eigum alls ekki samleið. Kann að setja myndir af myndavélinni á tölvuna, senda og setja inn á þessa síðu. Nú hins vegar gerist ekkert, og ef þetta blog skilar sér ekki verð ég fantafúl. Síðan síðast hefur margt gerst í lífi kotkerlu. Fór í aðgerð í lok ágúst í vonandi lokahnykk á brjóstsvæðinu og eftir það dvöldum við bestimann í algjörri sæluviku á Bergheimum á Sólheimum í Grímsnesi. Dvölin þar gerir manni eitthvað svo ótrúlega gott, maður kemur ekki alveg sami maður til baka. Þeir sem að þessu "batteríi" standa eiga allar heimsins orður skildar.--Eftir þessa dásemdardvöl  hófst kennslan og söngför Gleðigjafanna minna undirbúin af krafti. Í gærkvöldi komum við svo heim ferðalúin en alsæl með yndislega tónleika og frábærar móttökur Vopnfirðinga. Ég hef oft spilað þar tónleika  sem alltaf hafa verið vel sóttir, og þeir eru höfðingjar heim að sækja. Vopnafjörður er einn af fallegustu bæjarstæðum sem ég þekki og landslagið ótrúlega fallegt. Það er auðfarið á Vopnafjörð, beinn og breiður vegur alla leið. Mæli með honum.  Framundan er lífið í allri sinni mynd, og með öllu því sem það býður uppá gott eða slæmt. Ég hef því ákveðið að lífið verði gott og ég hlakka til komandi verkefna sem eru ærin. Þar stendur "doldið" uppúr: Ég er  nefnilega að æfa jass og dixilandlög á píanóið og er algjör tréhestur. Sko, ég er ekki dökk á brún á brá hvar sem þeir eru bestir í þessari tegund tónlistar. Ég er rétt aðeins sólbrún eftir Spán með klassík í puttunum. Mér er samt talin trú um að ég geti þetta og fyrst svo er ætla ég bara að æfa mig í að vera swinguð! Núna í vikunni förum við bestimann til Rvík. og þar ætla ég að biðja mína góðu lækna um gott veður fram að næsta vori. Ætlum líka í leikhús og ef ég verð dugleg og heppin hitti ég kannski einhverja góða í Kringlukaffi....læt vita síðar þar til næst.
Posted by Picasa

miðvikudagur, 14. ágúst 2013

Þaðan sem frá var horfið...

Nú í sumar hefur verið algjör ládeyða á þessari síðu, en það hefur sko ekki verið nein ládeyða í lífi okkar bestimanns. Sumarið hefur verið hreint út sagt viðburðarríkt í meira lagi, fullt hús af yndislegu fólki og mikið líf. Kotkerling losnaði úr koti sínu á réttum tíma til að uppgötva mikla sýkingu, og þá fór um Gvend og meyna...allt sumarið framundan. Á mánuði tókst þó að lemja þetta niður, en ég stóð uppi og bölvaði út í loftið.  Maður má nú stundum! Að fá að hafa Svanfríði og snúðana tvo var mikil upplifun og mikil gleði sem ég get alls ekki skýrt út svo vel sé, enda ætla ég ekki að reyna það en hjartað mitt er fullt af ást og væntumþykju. Henni dóttlu minni er ekki fisjað saman. Íslenskukunnátta strákanna og skilningur þeirra á málinu er aðdáunarverð, og allt skrifast það á móðurina. Hvort sem það er faðirvorið, lög með Ragga Bjarna eða hreint og klárt bölv...allt gert af stakri prýði. Það var mikið brallað og allir upplifðu eins og til var ætlast. Það var því erfitt að kveðja, en Spánn var á næsta leiti svo það dreifði huganum. Þar vorum við bestimann svo í vellystingum og með góðu fólki í 12 daga. --- Ég hef alltaf elskað sól og hita og þoli mjög vel þannig letilifnað í smátíma. Nú var hinsvegar Bleik brugðið "a bit". Krabbameinsmeðferðin öll og lyfjaátið hefur skilið eftir sig sitt lítið af hverju. Núna þurfti ég að passa mig extra vel, en það eyðilagði ekkert fyrir mér, ég varð bara örlítið varkárari. Við eigum góða Spánska vini sem alltaf gaman er að hitta hvort sem það er á Spáni eða hér á Hólabrautinni. Fyrst þegar við kynntumst var sonurinn pínupeð, varla talandi. Í dag er hann stærri en ég og alltaf jafn fallegur og góður. Áður en ég get litið við verða mínir strákar svona stórir og fallegir, jafnvel fallegri, og ég ætla að sjá til þess að vera á staðnum þegar þeir detta í fullorðinsgírinn!  Segi og skrifa. Núna fer lífið aftur á móti að taka á sig annan blæ og vetrarstarfið að hefjast. Áður er það gerist fer ég í enn eina smáaðgerðina, beinþéttnimælingu og sitthvað fleira. Eftir það ætlum við bestimann að dvelja í viku í Bergmáli, Sólheimum og hver veit, kannski næ ég að stika staðinn á eftir Reyni Pétri göngugarpi. Allavega næ ég ekki að halda í við hann. Myndin hér að ofan var tekin fyrir rúmri viku og ég ætla að orna mér við hugsunina um Spán, en fyrst þarf ég að knúsa vesturfarana. Hvernig og hvenær af þessu öllu verður kemur bara í ljós þar til næst.

föstudagur, 7. júní 2013

Fréttir af kotkerlingu.



Verulega sumarlegt blogg, sólin skín og fyrsta rósin opnaði sig í dag og tileinka ég hana öllum sem kíkja hér inn. Nýi sólpallurinn gasalega flottur og væri ekki amalegt að bjóða í ball. Í dag er frúin hálfnuð í kotinu og get því á morgun farið að telja niður, er í raun byrjuð.....eða þannig. Get þó ýmislegt gert í rólegheitunum og læt lítið hagga mér. Tek skutlutúr á hverjum degi og dáist að bænum mínum. Hann er svo fallegur og öllu svo vel við haldið. Nú getur maður skokkað á skutlunni meðfram ströndinni á dúnmjúku malbiki. Þið verðið bara að koma til Hafnar og sjá hvað ég er að tala um. Ykkur verður sko ekki í kot vísað! Svo fyndin....."Gamla búð" var vígð í dag í nýrri og fallegri mynd á hafnarsvæðinu. Þetta er drottning allra húsa hér að mínu mati og er Hornfirðingum til mikils sóma.--- Jæja, ekki á morgun, ekki hinn heldur HINN koma Ameríkufararnir. Ég er svo spennt að það heldur fyrir mér vöku endrum og sinnum. Svali= tékk....Kókómjólk= tékk...hjól= tékk og allt hitt= tékk svo nú er bara að bíða, oog bííða ooog bíííðða. Svo þegar allir eru komnir í hús  líður tíminn allt of hratt. Með sólarkveðju á alla bæi þar til næst.

föstudagur, 24. maí 2013

HANSÍKOTI!

Ég vil þakka ykkur kæru vinir góðar kveðjur mér til handa. Nú er ég vonandi farin að sjá fyrir endan á þessu ferli sem hefur staðið yfir í rúm tvö ár. Til að segja söguna eins og hún er get ég ekki fengið uppbyggingu á nýju brjósti, skömm sé geislunum. En, minn frábæri læknir lagaði því mitt eigið brjóst og gerði mig eins góða og hægt er. Böggull fylgir þó skammrifi, ég var sett í kot, kot sem er mig lifandi að sjúddirarirei! Var búin að heyra sögur af koti og leist ekki á. Núna er ég hinsvegar komin í 6 vikna kot nætur og daga. Má taka það af til að sturta mig, spurning um að dvelja bara undir bununni. Þegar ég var lítil var bannað að blóta, pabbi þoldi  nefnilega ekki ljótan munnsöfnuð. Ég bölvaði þessvega aldrei, hvorki heima né heiman. Hinsvegar lærði ég hjá bróður mínum að segja Hans í Koti mjög hratt, og þá varð úr það orð sem ég vil segja um kotið þessa dagana. ----Núna er ég verulega farin að bíða eftir Ameríkuförum, verð að láta tímann líða hvort eð er. Það er því fullt dagsverk að bíða eftir þeim. ---Vorið er komið, allt orðið grænt, rósirnar dafna, nýr sólpallur kominn og ég horfi á þetta alltsaman og stjórna því sem ég get og fæ að stjórna þar til næst.

föstudagur, 3. maí 2013

Tæknivangaveltur í einu orði.

Ég get svo svarið það....tæknin og ég fylgjumst ekki alveg að. Ég hef reynt, það veit Guð, en ég held ég gefist  upp í því skjóli að ég sé komin á "þann aldur"!  Á þó tölvu sem ég vildi ekki vera án og á venjulegan gamaldagssíma sem sumir hlæja að.  App er t.d. eitthvað sem ég lét viljandi framhjá mér fara lengi vel, ég tala nú ekki um hinn víðfræga heimabanka. Kemst ekki hjá því lengur að "ignora" þetta, en svei mér þá, ég strögglast enn við. ( Hef nefnilega yndislegar bankakonur hér í bæ sem sjá um mín mál. Til þess eru þær þessar elskur!) Sko...ég á ekki svona síma sem er nánast fastur við hvern mann, síma sem gerir allt...ef þú kannt á hann. Ég hræðist svoleiðis tól. Ég t.d. vil geta farið í strætó án þess að fletta öllum leiðum upp í einhverju appi, ( fer sjaldan í strætó) pantað mér leikhúsmiða í gegnum síma og svo margt annað sem hefur með mannleg samskipti að gera. Nota bene, ég er komin á fallegan aldur og má því ýmislegt. Nóg um það. 40 ára afmælistónleikar eru búnir, óperusöngvarinn kominn og farinn, prófin í skólanum byrjuð og Gleðigjafarnir sungu á hádegistónleikum í dag. Á morgun förum við í söngferð, tvennir tónleikar og ball á eftir. Jawell, eins og karlinn sagði. --- Eftir tónleikana 9. maí keyri ég "söður" og býð eins og fyrr í kaffi þann 10unda handan við búðina góðu.  Ef ég er ekki þar fyrir einhverja slysni þá dugar kannski að hringja í þrjár stuttar og eina langa eins og heima á Gunnlaugsstöðum þar til næst.