| Allt tekur enda, en þennan endi á ég erfitt með og því best að blása það frá sér. Yfirleitt er ég glöð og kát, en nú er ég full af söknuði því Ameríkufararnir fóru með morgunfluginu suður og kotið er svo tómt. Ég veit, ég veit,--- við erum búin að eiga yndislegar vikur og upplifa margt, en núna er allt samt svo tómt. Ég veit líka að öllum líður vel og ekkert amar að, en samt...Ok..ég veit þetta alltsaman. Mér bara líður svona núna og það skal í ykkur sem nenna að lesa þessar kvartanir. Móðurtilfinningin er sterk, en ég kann ekki að lýsa ömmutilfinningunni, hún er eitthvað fiðrildi sem flögrar um heila, maga og hjarta. Kökkurinn er mjög ofarlega í kokinu og þarf lítið útaf að bera til að hann blómstri. Núna er ég að æfa t.d. lagið ömmubæn fyrir landsmót kvennakóra, og það er stutt í að kökkurinn fái að blómstra við það. Ætla samt að standa mig þegar stundin rennur upp. Kæru bloggvinir nær og fjær, ég óska ykkur gleðilegs sumars og þakka fyrir veturinn. Eftir erilsama tónlistarhelgi ætlum við afi að keyra suður og fylgja okkar fólki úr hlaði. Minna getur það ekki verið. Þar til næst kveður amman og biður góða vættir að vísa veginn. |
föstudagur, 25. apríl 2008
Jamm og jæja.
miðvikudagur, 16. apríl 2008
Smá fréttir.
| Hér á bæ er bannað að telja niður, en ég skil ekki hvert tíminn flýgur. Ég hef, ásamt afanum upplifað margar yndisstundir með litlum snúðum og reynt að svara mörgum spurningum. Á bara eftir að reyna að útskýra hvort "guð sendi okkur jólin". Þegar ég var að bögglast við að svara Eyjólfi um hækjurnar mínar og hnén endaði ég á að segjast vera bara gömul amma, og þóttist góð. Nei, sá stutti sagði að ég væri ekki gömul, bara falleg! Þar hafið þið það. Hann var líka sá eini sem tók eftir mikilli breytingu á ömmunni eftir yfirhalningu hár- og snyrtidömunnar. " Þú ert fín og falleg". Bara flottur. Natta hefur farið mikið fram í öllum hreyfingum, er farinn að standa upp sjálfur og tók nokkur skref um daginn. Montinn náungi þar á ferð sem kann að dansa. Sl. laugardag fórum við í fimleika með Eyjólfi, og það var gaman. Langur laugardagur var svo hjá karlakórnum og kom Svanfríður með strákana á æfinguna. Natti skildi lítið í listinni, en sá stóri stóð á kórpallinum hjá afa með opna sálmabók og söng hástöfum. Sem betur fer náðist sá söngur á video. ---Sem sé, lífið er gott á Hólabrautinni.--- Í dag fóru frá okkur bandarískir vinir Svanfríðar og Berts, voru í sinni fyrstu heimsókn. Þau tóku vel á móti okkur vestra og var gaman að geta endurgoldið það á heimavelli. Þau heimsóttu grunnskólann, skoðuðu Jöklasýninguna, löbbuðu um bæinn og snarfestu sig úti á fjörum, varð kalt, lentu í snjóbyl en nutu hverrar mínútu.---Hangikjöt, harðfiskur, nýr fiskur, skyr, síld, og malt + appelsín fór vel í þessa góðu gesti. --- Nú er lokatörnin í tónlistinni, karlakórstónleikar sumardaginn fyrsta og landsmót kvennakóra tveimur dögum seinna. Hljómsveitaræfing var í kvöld fyrir hátíðarkór landsmótsins og gekk vel. Verst að geta ekki fílað sig algjörlega og haft gryfju! Þar til næst.... |
fimmtudagur, 10. apríl 2008
krakkar út kátir hoppa
| Það er svoleiðis á mínum bæ, og hér er mikið fjör. Húsið beinlínis iðar af lífi. Ég veit varla hvar ég á að byrja, mig langar að segja svo margt.--- Í fáum orðum: Ég á yndislega dóttur sem gaf mér tvo ömmustráka, stráka sem eru heilbrigðir og haldið er utan um af foreldrunum. Þótt Svanfríður ætli að læra sagnfræði sé ég hana ekki fyrir mér sem slíkan fræðimann...hún er uppalandi og fræðari sem hvetur á bæði borð. ( Nú hlýt ég að fá komment frá dömunni) Eyjólfur Aiden: Dansar, fer í fimleika, leggur á borð, stjórnar garðvinnu, tvistar með viskastykki á höfðinu, fer í veghús (n.b. Húsasmiðjuna) pissar úti í garði, hjólar, fer í langa göngutúra og stjórnar kórnum mínum. Nathaniel Noble: Hann brosir, borðar, klappar saman höndunum og tyllir sér á tær við flygilinn og spilar. Hann spilar náttúrulega tóma steypu, en hún hljómar fínt. Sérstaklega þegar ég er að vinna við hljóðfærið og Eyjólfur syngur með! Væri gott og verðugt verkefni fyrir tónskáldið Hildigunni að vinna úr! ---Lífið er semsagt gott, en heldur mikið álag í tónlistinni fyrir ömmu sem vill helst vera heima þessa dagana. Allir kórar að uppskera og tónleikar í bunum. Löngum bunum. Takk fyrir að fylgjast með lífinu hér á Hólabrautinni...Þar til næst. |
fimmtudagur, 3. apríl 2008
Námskeið?
| Bara að láta vita af mér, öllum örugglega til mikillar gleði. Hér á bæ er mikið líf og vildi ég svo gjarna vinna aðeins minna út á við, og vera meiri spretthlaupari en ég er. Snúðarnir mínir eru miklir ungherrar, fallegir, og sennilega "bestastir" hérna megin Atlandsála! Mér er nokk sama þótt lesendur séu þessu ósammála því ég VEIT betur.--- Matur: Á morgun verða fiskibollur úr dós í bleikri, lambalærin reykt og steikt hafa verið etin, einnig soðinn humar með majonesi og kaldri mjólk. Annað eins léttmeti og pizza, kjúlli og spaghetti hefur verið á borðum, og fljótlega skal á borð borið saltkjöt og baunir....túkall. Snúðar borða nokkuð vel, sá stutti aðeins betur en hinn og kjamsar vel. Lífið er gott. Allir sofnaðir í bænum og ég kveð með bæn á vör. Megi allar góðar vættir vera með mínu fólki sem og öðrum. Þar til næst. |
miðvikudagur, 26. mars 2008
Ættarsilfur og gersemar.
| Þegar ég var unglingur fékk ég í arf eftir góða konu, heljarinnar matarstell, kaffistell, súkkulaði- og mokkastell. Með öllu þessu "góssi" er mikið af fylgihlutum, og er allt þetta mjög gamalt og fallegt. Einnig fékk ég silfurborðbúnað frá þessari góðu konu. Í þeim pakka er allt frá hatti ofan í skó, og á heimilinu gengur þetta undir nafninu ættarsilfrið. Vitanlega þykir mér vænt um ættarsilfrið og tel mig eiga gersemar. En það fellur á þessar gersemar, og stellin eru notuð við hátíðleg tækifæri.( Ég myndi t.d. aldrei sanka að mér svona hlutum, og borga offjár fyrir) Núna veit ég aftur á móti vel hvernig ættarsilfur og gersemar virka, og virka vel. Það er í formi tveggja lítilla stráka sem hafa stolið hjartanu mínu. Ættarsilfur nr.1 er dóttirin sem fæddi þá af sér, og hún hefur ekki slegið slöku við. Eyjólfur talar íslensku, að vísu enskublandna, en honum fleygir fram með degi hverjum. Mig need vettlinga... I need fara í rennibraut...en kann allt faðirvorið uppá íslensku. Eyjólfur er mikill karakter, sérstaklega þegar hann er í grænu froskastígvélunum! Ég var á æfingu í gærkvöldi fyrir útför, og hann sat á orgelbekknum hjá mér, prúður, með opna bók og stjórnaði! Gerði það nokkuð þokkalega. Syngur fallega og kann að hoppa á annarri! Leggur á borð, gerir það rétt og er yfirsmakkari á sósum. Í þykjustuleikjum er Eyjólfur flottur. Natti minn patti er óskrifað blað ennþá. Meðan hann fær gott í gogginn og þurra bleiu er hann alsæll. Rólegur og alveg ofboðslega fallegur með nýju Navy klippinguna, sex tennur og flott slef. Sko,--- ég held að Eyjólfur eigi eftir að láta að sér kveða á listasviðinu, en Nathaniel verður sagnfræðingur og bókaormur. Kannski hef ég svo mikið rangt fyrir mér, "but so be it". ( svona talsmáti er bannaður á Hólabrautinni nú um stundir!) Nú er klukkan orðin margt, strákarnir steinsofa, bóndinn líka en ættarsilfrið nr.1 horfið á DVD. Semsagt rólegheit. Væmin amma? Ónei, en ég elska fólkið mitt óendanlega og vona að allar góðar vættir veri með þeim. Ég hef sagt áður að ég öfundast ekki út í neinn , en verð að viðurkenna að það er ekki satt! Ég get ekki haldið á Natta mínum nema í sitjandi stöðu. Eyjólfur skilur fótafúann og kyssir á bágtið, en sá stutti nýtur góðs af afa fangi. Á göngu sinni raula þeir saman, annar er djúpur bassi en hinn kvakar yndislega, og saman mynda þeir fallegt tónverk. ----Bert, if you read this blog.... don´t forget we love you and miss you a lot. Your boys are beautiful,( let alone your wife) so keep up the good job. You two are doing great. ---Þar til næst. |
þriðjudagur, 18. mars 2008
Nú gaman gaman er..
| Gefi lán og yndi hvert ógengið spor, gæfusömum vini hug og þor.--- Þetta er meint í fleirtölu. ---Nú eru tveir litlir strákar steinsofandi í ömmubæ, fallegir og góðir, og mér líður svo sannarlega vel. Þar til næst. |
mánudagur, 17. mars 2008
Eirðarleysi...
| Það er að hrjá mig eirðarleysið, og það verulega. Var að tala við dótturina sem bíður í Boston eftir flugi heim. Ferðin frá Chicago gekk vel, en núna er komin þreyta í þá bræður. Vonandi sofa þeir í næsta flugi. Bóndinn fór suður í dag og var ansi búralegur með tvo barnastóla í bílnum. Ég get ekki keyrt bíl eiginmannsins svo daginn átti að nota í annað en ferðast á milli staða. Í hvað fór svo dagurinn? Mestmegnis í vafr um húsið og festi ég ekki hugann við neitt, en þóttist þó gera sitt lífið af hverju. Var á kóræfingu í rúma tvo tíma í kvöld en fannst ég spila með báðar hendur fyrir aftan bak. Hvar endar þetta? Jú, ég veit.....þetta endar annaðkvöld, þegar fólkið mitt hefur skilað sér í hús. Núna er ég að bíða eftir sms frá Svanfríði þar sem hún segir mér að nú sé flugferðin heim að hefjast, eftir það ætla ég að fara með allar bænirnar mínar og vita hvort Óli lokbrá heimsæki mig ekki. Í þeim skrifuðu orðum býð ég öllum góða nótt. --- Ps. Getur maður verið með gæsahúð í mallanum af spenningi? Þar til næst. |
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)